Sauðfjársetur á Ströndum - Sævangi - 510 Hólmavík - Sími: 451-3324 / 661-2009 - Mail: saudfjarsetur@strandir.is

 

Sauðkindin

.

Vor og sumar
.
Smalamennska

.

Sláturtíð

.

Afurðir

.

Ullarvinnsla

.

Fjárhús

.

Vetrarverkin

.

Frægar kindur

.

Ýmislegt

.

Upphafssíða

 

Harðindi og skepnufellir
- Til baka í vetrarverkahorn -

Gamall húsgangur frá 17. öld lýsir vel því ástandi sem skapast gat í harðindum fyrri alda:

Níu á ég börn og nítján kýr,
nær fimm hundruð sauði,
sex og tuttugu söðladýr,
svo er nú varið auði.

Þetta var um haustið. Eitthvað hefur svo hallað undan fæti yfir veturinn því um vorið samdi skáldið vísuna upp á nýtt:

Níu á ég börn og níu kýr,
nær fimmtíu sauði,
sex eru eftir söðladýr,
svo er nú komið auði.

Afföll sem þessi voru ekki óalgeng fyrr á öldum. Þá eru ekki tekin með í reikninginn þau gríðarlegu áhrif sem atburðir eins og Móðuharðindin höfðu á sauðfjárbændur og búskap - þessar vísur gætu auðveldlega átt við um venjulegan vetur á Íslandi fyrir tíma gróðurhúsaáhrifa.



 

 

 

 

Félag áhugamanna um Sauðfjársetur á Ströndum - saudfjarsetur@strandir.is
© 2002 Sögusmiðjan - Síðan var síðast uppfærð febrúar 2008