|

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.
 |

Sauðburður
- Til baka
í vor- og sumarverkahornið -
Sauðburður
þykir mörgu sveitafólki
vera skemmtilegasti tími ársins. Þá er
veturinn á enda, daginn farið
að lengja, fuglasöngur í lofti og gróður í miklum vexti. Það að
annast kindur í sauðburði er verk sem hefur breyst mjög lítið í
gegnum tíðina.
Sauðburður hefst yfirleitt fyrrihluta maí, en ærnar ganga með lömbin
í 143 daga,
stundum 2 dögum lengur eða skemur.
Frjósemi ánna fer mikið eftir því hve vel er að þeim búið yfir
veturinn. Sé illa
fóðrað að haustinu og ærnar
leggja mikið af fram á fengitíma þá er hætta á að margar þeirra
verði einlembdar. Það er sjaldgæft í dag þar sem nútímabændur eiga
yfirleitt alltaf nóg af heyi. Frjósemi Strandakinda hefur ætíð verið
góð, en fyrr á öldum var til þess tekið hve
frjósemi var betri á
bæjum þar sem fjörubeit var góð.
Að mörgu er að hyggja í sauðburði
og mikil vinna fylgir honum. Megnið af heimilisfólkinu þarf að
bregða sér í ljósmóðurhlutverkið þegar þannig ber undir og vaka þarf
yfir kindunum allan sólarhringinn.
|



 |