Sauðfjársetur á Ströndum - Sævangi - 510 Hólmavík - Sími: 451-3324 / 661-2009 - Mail: saudfjarsetur@strandir.is

 

Sauðkindin

.

Vor og sumar
.
Smalamennska

.

Sláturtíð

.

Afurðir

.

Ullarvinnsla

.

Fjárhús

.

Vetrarverkin

.

Frægar kindur

.

Ýmislegt

.

Upphafssíða

 


Fjármörk
- Til baka í vor- og sumarverkahornið -

Mórauður, með mikinn lagð,
mænir yfir sauðakrans;
hófur, netnál, biti, bragð
á báðum eyrum mark er hans.
[Þjóðsögur Jóns Árnasonar II, bls. 267]

Fjármörk hafa verið notuð hér á landi frá upphafi byggðar. Markmiðið með þeim er að komast hjá erjum vegna eignarréttar og að auðvelda bændum að þekkja kindurnar sínar þegar þær koma af fjalli. Aðferðirnar sem notaðar hafa verið til að marka fé eru nokkrar:

  • Eyrnamörkin bárust til landsins með landnámsmönnum og hafa haldist hér síðan. Lömbin eru mörkuð þegar þau eru nokkurra daga gömul. Fyrrum var það gert með beittum hníf en í dag eru notaðar sérstakar markatangir. Í dag er skylda að setja einnig plast- eða álplötur með númeri lambanna og bæjar- og hreppsnúmeri í eyrun.

  • Brennimörk eru sett á hornin á kindunum. Þessi mörk eru rétthærri en eyrnamörkin og farið er eftir þeim þegar réttað er.

  • Hornamörk voru stundum tálguð í hornin áður fyrr, þegar erfitt var að marka fé upp.

  • Sumstaðar tíðkaðist að skrúðdraga eða spottadraga féð til að þekkja það. Þá var ullarband með þremur litum fléttað saman og dregið í gegnum eyrað.

Skipulag og eftirlit með mörkum er í föstum skorðum í dag. Í hverri sýslu eru markaverðir sem gefa út markaskrár og útbýta mörkum til þeirra sem sækja um þau. Samkvæmt markaskrá 1997 eru í gildi í landinu 17.000 mörk, en líklega eru mörg þeirra lítið notuð.

Í dag er mikið lagt upp úr því að fjármörk séu ekki of gróf, m.a. er unnið gegn notkun nokkurra marka í markaskránni.

 

 




 

 

 

Félag áhugamanna um Sauðfjársetur á Ströndum - saudfjarsetur@strandir.is
© 2002 Sögusmiðjan - Síðan var síðast uppfærð febrúar 2008