Sauðfjársetur á Ströndum - Sævangi - 510 Hólmavík - Sími: 451-3324 / 661-2009 - Mail: saudfjarsetur@strandir.is

 

Sauðkindin

.

Vor og sumar
.
Smalamennska

.

Sláturtíð

.

Afurðir

.

Ullarvinnsla

.

Fjárhús

.

Vetrarverkin

.

Frægar kindur

.

Ýmislegt

.

Upphafssíða

 


Sauðfjárbúskapur á Ströndum
- Til baka í fjölbreytta hornið -

Á Ströndum eru fén svo feit
að fæstir síður eta,
þeir sem eru úr annarri sveit,
en innfæddir það geta.
[Úr búnaðarbálki Eggerts Ólafssonar]

Líf og afkoma bænda á Ströndum í gegnum aldirnar hefur að miklu leyti byggst á sauðfjárbúskap. Hlunnindi hafa líka skipt verulegu máli og meira eftir því sem norðar dregur í sýslunni.

Fé af
Ströndum hefur lengi verið með því vænsta og best gerða á landinu. Mikil áhersla á ræktunarstarf og góð beitarlönd í héraðinu hafa skilað árangri sem Strandamenn geta verið stoltir af.


Líflambasala úr Strandasýslu hefur verið talsverð á síðastliðnum árum og þau lömb sem seld hafa verið til niðurskurðar­svæða hafa reynst mjög vel. Strandir eru eitt af fáum svæðum á landinu sem líflambasala er leyfð á, en hér eru ekki landlægir hættulegir smitsjúkdómar í sauðfé. Þá hafa hrútar af svæðinu einnig verið eftirsóttir af sæðingastöðvum.

Lambakjöt af Ströndum er það
besta í heiminum. Fallþungi dilka er óvíða meiri en í Strandasýslu og vöðvafylling góð. Strandadilkar hafa komið vel út úr flokkun á kjöti eftir að hún var tekin upp. Kjötið er meyrt og safaríkt - gott á grillið, í ofninn, á pönnuna og í pottinn.
 

 

 

Félag áhugamanna um Sauðfjársetur á Ströndum - saudfjarsetur@strandir.is
© 2002 Sögusmiðjan - Síðan var síðast uppfærð febrúar 2008