Sauðfjársetur á Ströndum - Sævangi - 510 Hólmavík - Sími: 451-3324 / 661-2009 - Mail: saudfjarsetur@strandir.is

 

Sauðkindin

.

Vor og sumar
.
Smalamennska

.

Sláturtíð

.

Afurðir

.

Ullarvinnsla

.

Fjárhús

.

Vetrarverkin

.

Frægar kindur

.

Ýmislegt

.

Upphafssíða

 


Framtíð sauðfjárbúskapar
- Til baka í fjölbreytta hornið -

Sauðfjárbúskapur á í vök að verjast á Ströndum eins og víðast annars staðar. Fækkun bænda og fjárbúa hefur verið mikil síðustu ár og meðalaldur sveitafólksins er orðinn hærri en góðu hófi gegnir.

Lítið er um að ungt fólk sé í þeim hugleiðingum að gera sauðfjárbúskap að
ævistarfinu. Sem betur fer gerist það þó öðru hverju, enda er margt við búskapinn sem heillar. Bændur ráða sér sjálfir og hver og einn þeirra er á vissan hátt kóngur í ríki sínu.

Það mikla og góða starf sem hefur verið unnið við sauðfjárræktun og kynbætur gefur líka góð fyrirheit um skemmtilega framtíð fyrir þá sem leggja sauðfjárbúskapinn fyrir sig. Það sem skiptir þó mestu fyrir bændur á Ströndum eins og aðra bændur er að gæði afurðanna haldist, vöruþróun sé öflug og landsmenn haldi áfram að borða blessað lambakjötið.

 

 

 

Félag áhugamanna um Sauðfjársetur á Ströndum - saudfjarsetur@strandir.is
© 2002 Sögusmiðjan - Síðan var síðast uppfærð febrúar 2008