Sauðfjársetur á Ströndum - Sævangi - 510 Hólmavík - Sími: 451-3324 / 661-2009 - Mail: saudfjarsetur@strandir.is

 

Sauðkindin

.

Vor og sumar
.
Smalamennska

.

Sláturtíð

.

Afurðir

.

Ullarvinnsla

.

Fjárhús

.

Vetrarverkin

.

Frægar kindur

.

Ýmislegt

.

Upphafssíða

 


Sauðfjárræktarfélög
- Til baka í fjölbreytta hornið -

Eftir að mæðiveikin og fleiri sjúkdómar höfðu herjað á landið rétt um miðja síðustu öld, fóru bændur sem skipt höfðu um fé að huga að því að bæta fjárstofninn. Nýi fjárhópurinn var oft sundurleitur á að líta, enda var féð fengið víða að og af mörgum bæjum.Í framhaldi af þessu var um allt land stofnað til félagsskapar um fjárræktun.

Sauðfjárræktarfélögin hafa komið því til leiðar að eftirlit og skráning á sauðfé er í mun betra horfi en áður. Kynbætur á vegum félaganna hafa reynst mikilvægar fyrir búskapinn.


Sauðfjárrækt í Tungusveit

Gott dæmi um
öflugt fjárræktarfélag er Sauðfjárræktarfélag Kirkjubólshrepps. Það var stofnað 16. desember 1951 í skólahúsinu á Heydalsá. Stofnfélagar voru 13 sauðfjáreigendur í hreppnum. Fyrsta stjórn félagsins var kosin á fundinum, en hana skipuðu Karl Aðalsteinsson á Smáhömrum formaður, Grímur Benediktsson á Kirkjubóli ritari og Jón B. Jónsson á Geststöðum gjaldkeri.

Í fyrstu voru eingöngu skráðar ær sem valdar voru af stjórn félagsins, en síðar var allt fé skráð. Félagið stóð fyrir hrútakaupum, en hrútar úr Kirkjubólshreppi hafa löngum verið taldir með þeim betri á landinu. Keyptir voru ungir og efnilegir hrútar sem höfðu fengið góða dóma á sýningum og þeir notaðir af öllum félagsmönnum. Sæðingar á vegum félagsins hófust á árunum 1960 og 1961.

Sauðfjárræktarfélagið sendi menn á námskeið í vélrúningi 1962 og keypti síðan eina af þeim vélum sem kennt var á. Hún var notuð af félagsmönnum í mörg ár. Árið 1966 var keypt fjárvigt. Mönnum þótti það mikil breyting að geta látið kindurnar renna í gegnum vigt í stað þess að þurfa að lyfta þeim upp á krók. Félagið átti mörg önnur verkfæri sem félagsmenn nýttu til bústarfanna. Lög Sauðfjárræktarfélags Kirkjubólshrepps gefa skýra mynd af tilgangi og starfsemi sauðfjárræktarfélaga:

1.  gr.
Félagið heitir Sauðfjárræktarfélag Kirkjubólshrepps og nær félagssvæðið yfir Kirkjubólshrepp.

2. gr.
Tilgangur félagsins er sá að kynbæta sauðfé félagsmanna með tilliti til bættra afurða, hreysti og útlits.

3. gr.
Tilgangi sínum hyggst félagið ná:
a) Með skipulögðu úrvali úr fjárstofni þeim, er félagsmenn eiga er félagið er stofnað.
b) Með því að finna erfðaeðli einstaklinga með glöggum ættartölum, afurðaskýrslum og afkvæmarannsóknum.
c) Með því að kaupa kynbótafé til þess að fá í fé félagsmanna æskilega eiginleika sem vantar í það.
d) Með því að festa kostina í kyni og vinna að útrýmingu duldra galla með skyldleikarækt eftir að búið er að fá féð útlitsgott og afurðamikið með úrvali og íblöndun aðkeypts kynbótafjár.

 

 

 

Félag áhugamanna um Sauðfjársetur á Ströndum - saudfjarsetur@strandir.is
© 2002 Sögusmiðjan - Síðan var síðast uppfærð febrúar 2008