|
|
||
| Sauðfjársetur á Ströndum - Sævangi - 510 Hólmavík - Sími: 451-3324 / 661-2009 - Mail: saudfjarsetur@strandir.is | ||
|
. . . . . . . . .
|
Ef marka má þjóðsögur og munnmæli hefur sauðaþjófnaður verið einhver mesta synd sem menn gátu drýgt í gamla bændasamfélaginu. Þjófurinn og tunglið Einu sinni var sauðaþjófur sem settist niður á afviknum stað með feitt sauðalæri sem hann hafði stolið og ætlaði hann að snæða það í makindum. Tunglið skein skært og engin ský voru á lofti. Þjófurinn ávarpaði þá tunglið með þessum ósvífnisorðum og rétti um leið upp á móti því hnífinn með ketbita á oddinum.
Viltu, tungl, Þá svaraði honum aftur rödd af himni:
Viltu, hvinn, Í sama bili féll glóandi lykill úr háloftunum niður á kinn þjófsins og brenndi þar á hann brennimark. Sagt er að af þessu hafi sá siður verið tekinn upp sem algengur var á fyrri öldum að brennimerkja þjófa.
Þormóður fann að ekki var allt með felldu um hvarf Móra og fór um haustið að messu að Staðarfelli. Þar spyr Þormóður hvort nokkur hafi orðið var við Móra og neita því allir. Þá kallaði einn maður: Honum hefur sjálfsagt verið stolið. Betur væri að allir þjófar hér væru flengdir og hengdir. Segir þá Þormóður stundarhátt: Jarmaðu nú Móri minn hvar sem þú ert! Í sama bili kom feikilegur jarmur úr manni þeim sem mest hafði hallmælt þjófunum. Var eins og Móri ærðist og beljaði ofan í honum sem mest hann mætti. Varð maðurinn að gangast við því að hann væri sjálfur þjófurinn og hefði étið sviðin af Móra um morguninn.
|
|
|
Félag
áhugamanna um Sauðfjársetur á Ströndum -
saudfjarsetur@strandir.is |
||