|
|
||
| Sauðfjársetur á Ströndum - Sævangi - 510 Hólmavík - Sími: 451-3324 / 661-2009 - Mail: saudfjarsetur@strandir.is | ||
|
|
Fyrstu Furðuleikar á Ströndum sem sögur fara af voru haldnir þann 20. júní 2004 í blíðskaparveðri á Sævangsvelli. Sauðfjársetrið stóð fyrir skemmtuninni. Hæfilega mannmargt var á leikunum, sjálfsagt um 100 manns eða svo, en enginn vafi á að þeir sem mættu skemmtu sér konunglega við allra handa trúðslæti, grín og glens, bæði börn og fullorðnir. Félagar úr Leikfélagi Hólmavíkur settu skemmtilegan svip á skemmtunina, en margir þeirra mættu uppáklæddir og tóku þátt í hinum ýmsustu keppnisgreinum. Börnin fengu andlitsmálun við hæfi á staðnum og einstaka fullorðinn fékk líka málningu á smettið.
Keppnisgreinar voru nærri 10 talsins. Keppt var meðal annars í Prikhlaupi, Belgjahoppi, Afturgöngu, Öskri, Kvennahlaupi, Girðingastaurakasti og Trjónufótbolta. Loks mældu menn hver Strandamanna hefði breiðustu tunguna og kom þar margt óvænt í ljós. Á milli drukku menn kaffi og borðuðu dýrindis krásir í kaffistofu setursins eða keyptu sér sætindi í sjoppu Sauðfjársetursins en þetta er fyrsta sumarið sem sjoppa er rekin á staðnum.
Kynnir og stjórnandi hátíðarinnar, hinn virðulegi þjóðfræðingur Jón Jónsson, klæddi sig að sjálfsögðu í sparipeysufötin í tilefni dagsins.
Frænka Charley´s reynir sig í girðingastaurakastinu. Hún bætti reyndar kvennametið í greininni um 20 sentimetra, en fljótlega eftir að keppni lauk bárust vísbendingar um að frænkan væri í raun og veru karlmaður í dulargerfi og var þá metið fellt úr gildi. Er því met Svanhildar Jónsdóttur enn í gildi, en það er 12 metrar sléttir. Hins vegar jafnaði Alfreð Símonarson húsvörður og skólabílstjóri heimsmetið í girðingastaurakasti í karlaflokki, sem er 17,49 m. Er hann nú meðeigandi í metinu ásamt Guðbrandi Sverrissyni á Bassastöðum.
Ragnheiður bassi reynir sig í öskurkeppninni, en hafði ekki sigur að þessu sinni þrátt fyrir góð tilþrif. Lýður Jónsson frá Gili öskraði margfalt hærra en allir aðrir keppendur. Hann er líka í æfingu, enda í kirkjukórnum.
Keppni í Belgjahoppinu var jöfn og spennandi, en keppt var í nokkrum riðlum. Í yngri flokki varð Hadda Borg Björnsdóttir frá Þorpum hlutskörpust, en í eldri flokki fór Jón Gústi Jónsson með sigur af hólmi.
|
|
|
Sauðfjársetur á Ströndum
ses. -
saudfjarsetur@strandir.is |
||