Heilmikið fjör var á Furðuleikum
2005, þótt veðrið hafi verið
afbragðsvont sem hefur
örugglega haft áhrif á mætinguna. 50-60 manns létu sjá sig og
flestum keppnisgreinum sem halda átti úti var slegið á frest
fram á sumarhátið. Þó létu þeir allra hörðustu sig hafa það að
fara út til að læra og leika hinn æfaforna knattleik
Hringlanda. Hins vegar var þeim mun meira um að vera inni og
sannaðist að Strandamenn geta alveg eins verið furðulegir inni og
úti. Öskurkeppni fór fram í anddyrinu og heilmikil
Grettukeppni í kaffistofunni þar sem menn spiluðu líka og
sungu. Þá var farið í heilmikinn Vísbendinga- eða ratleik inni
á sögusýningunni og vakti hann mikla lukku.