|
|
||||
| Sauðfjársetur á Ströndum - Sævangi - 510 Hólmavík - Sími: 451-3324 / 661-2009 - Mail: saudfjarsetur@strandir.is | ||||
|
|
Hliðvörðurinn Hamingju-Hrólfur tók við starfinu á Furðuleikunum 2006.
Leikarnir hefjast jafnan á sýningargreininni trjónufótbolta. Þarna eru Matthías Lýðsson, Bergsveinn Reynisson(?), Jón Jónsson og Lýður Jónsson að kljást um boltann.
Girðingarstaurakastið var næst á dagskránni.
Aðalsteinn Valdimarsson á Strandseljum á fullu í tilhlaupinu.
Jón Jónsson á Kirkjubóli kastar staurnum við mikla kæti áhorfenda.
Ruslatínslan vakti mikla lukku, en þótti heldur auðveld - fyrir suma alla vega.
Vilhjálmur Jakob Jónsson og Magnús Einarsson keppa til úrslita í belgjahoppi.
Keppnin í kvennahlaupi var óvenju hörð þetta árið.
Dramatískt augnablik í kvennahlaupinu - Sverrir fellur með Salbjörgu og sigurinn (og Salbjörg) rennur honum úr greipum.
Skítkastið að hefjast - búið að bleyta upp í skítnum.
Lýður Jónsson frá Einfætingsgili var hið óheppna skotmark að þessu sinni.
|
|
||
|
Sauðfjársetur á Ströndum
ses. -
saudfjarsetur@strandir.is |
||||