Sauðfjársetur á Ströndum - Sævangi - 510 Hólmavík - Sími: 451-3324 / 661-2009 - Mail: saudfjarsetur@strandir.is

   

Sýningin

.
Kaffi Kind


Handverksbúð
.
Atburðir

.

Fréttir

.Myndir

.

Safnmunir

.Hafa samband

.Fróðleikskista

.

Tenglar

.

Upphafssíða

 

 
Handverks- og minjagripabúð Sauðfjársetursins

Í Sauðfjársetrinu í Sævangi er að finna sölubúð með einstöku handverki, minjagripum og ýmsum varningi. Búðin er, eins og Kaffi Kind og sýningin Sauðfé í sögu þjóðar, opin frá kl. 10:00-18:00 alla daga yfir sumarið, en yfir vetrartímann er hægt að fá hana opna með því að hringja í síma 661-2009 eða senda tölvupóst í netfangið saudfjarsetur@strandir.is.

Í handverksbúðinni er meðal annars að finna vörur sem eru sérstaklega unnar fyrir Sauðfjársetrið. Þar ber helst að nefna frábært handverk frá minjagripa- og handverksfyrirtækinu Þúfu á Hólmavík, en það sérhæfir sig í gerð muna fyrir söfn, m.a. fyrir Ósvör við Bolungarvík og Sauðfjársetrið. Einnig er handverk heimamanna í öndvegi auk valinna vörutegunda sem keyptar eru af fólki víðsvegar um landið.

Sauðfjársetrið hefur einnig nýverið hafið framleiðslu á eigin vörulínu sem eru bolir með skemmti-legum áletrunum. Stefnt er að því að bæta a.m.k. einum bol í þá flóru á hverju ári.

Hér á vefnum verður hægt að panta nokkrar vel valdar vörur innan skamms!
 

„Síðan er sumsé í vinnslu“

    

  

+++

 

Félag áhugamanna um Sauðfjársetur á Ströndum - saudfjarsetur@strandir.is
© 2002
Sögusmiðjan - Síðan var síðast uppfærð jan. 2009