Sauðfjársetur á Ströndum - Sævangi - 510 Hólmavík - Sími: 451-3324 / 661-2009 - Mail: saudfjarsetur@strandir.is

   

 

Safnið
 

Kaffi Kind

 

Minjagripir

 

Viðburðir

 

Fréttir

 Myndir

 

Munir

 

Fróðleikskista

 

Tenglar

 

Hafa samband

 

 
Meistaramót í hrútadómum 2004

Sunnudaginn 22. ágúst stóð Sauðfjársetur á Ströndum fyrir Meistaramóti í hrútadómum í Kirkjubólsrétt við Steingrímsfjörð. Er þetta annað árið í röð sem slík keppni er haldin á Ströndum.

Framkvæmdin er með þeim hætti að dómnefndin sem samanstendur af valinkunnum ráðunautum og hrútaþuklurum tekur nokkra hrúta til skoðunar áður en keppni hefst með aðstoð allra nýtísku tóla og tækja og raðar fjórum þeirra í gæðaröð. Yfir þessari röð dómnefndarinnar hvílir síðan mikil leynd. Hrútarnir sem valið var úr að þessu sinni komu frá bændum í Tungusveit, frá bæjunum Tröllatungu, Húsavík, Miðdalsgröf og Þorpum.

Keppt er í tveimur flokkum. Annar er hugsaðir fyrir vana bændur og fleiri vitringa, en hinn fyrir óvana sem þurfa þó að vita hvað snýr aftur og fram á hrútnum. Þeir sem eru vanir hrútadómum þurfa að stiga hrútana á hefðbundinn hátt, gefa þeim einkunn fyrir einstaka þætti og raða þeim í gæðaröð. Hjálpartæki eru engin, aðeins má nota hendurnar og önnur meðfædd skynfæri. Þeir óvönu þurfa ekki að nota stig, en gera tillögu um röðina á hrútunum - hver sé bestur og hver næstbestur og svo koll af kolli. Keppendur í báðum hópum rökstyðja dóma sína og vegur snjall rökstuðningur og lýsingar þungt, sérstaklega í flokki óvanra.

Keppendur að þessu sinni voru yfir 30 talsins, en á annað hundrað manns mætti á svæðið og fylgdist með og naut lífsins í blíðskaparveðri. Verðlaunahafar voru víðsvegar að, en á síðasta ári hirtu Strandamenn öll verðlaun sem í boði voru. Nú var aðeins einn Strandamaður í hópi sigurvegara - Jón Valur Jónsson frá Kirkjubóli (4 ára) sem vann 3. verðlaun í flokki óvanra hrútaþuklara með góðri aðstoð móður sinnar. Í öðru sæti í þeim flokki varð Svala Einarsdóttir og í fyrsta sætinu lenti Guðlaug Elíasdóttir, en þær komu frá Bolungarvík.

Í flokki þeirra sem vanir eru hrútadómum varð Gréta Karlsdóttir á Efri-Fitjum í Húnaþingi vestra í þriðja sæti, en jafnir í fyrsta sæti urðu Eiríkur Helgason í Stykkishólmi og Björn Sigurvaldason á Litlu-Ásgeirsá í Víðidal. Deila þeir því heiðrinum og titlinum hrútameistari Sauðfjársetursins næsta árið.

Góð verðlaun voru í boði í báðum flokkum - gefin af Kaupfélagi Skagfirðinga, Sölufélagi Austur-Húnvetninga, Álafossi og heimafyrirtækjunum Strandagaldri og Sauðfjársetrinu. Dómnefndina skipuðu Jón Viðar Jónmundsson ráðunautur hjá BÍ, Svanborg Einarsdóttir hjá Ráðunautaþjónustu Húnaþings og Stranda og Lárus Birgisson hjá Búnaðarsamtökum Vesturlands. Kaffihlaðborð var á boðstólum eins og venjan er á Sauðfjársetrinu í Sævangi á sunnudögum og í tilefni af hrútadómunum var einnig boðið upp á bláber og rjóma.

Sumardagskrá Sauðfjársetursins er styrkt af Menningarborgarsjóði.

 

 


 

 

Sauðfjársetur á Ströndum ses. - saudfjarsetur@strandir.is
© 2007 Sauðfjársetur á Ströndum