|
Meistaramót í hrútadómum 2006
fór fram
á Sauðfjársetrinu sunnudaginn 27. ágúst. Mikið var
um dýrðir og veðrið hélst þokkalegt á meðan mótið
fór fram, en keppnin fór fram í skjóli við
húsvegginn í Sævangi. Fjöldi keppenda sem margir
voru langt að komnir mættu til leiks og hefur
þátttaka sjaldan verið betri í flokki þeirra sem eru
vanir hrútadómum. Það var Strandamaðurinn
Kristján Albertsson á Melum í Árneshreppi sem
bar sigur úr býtum á mótinu eftir harða keppni, því
alls voru sex sem fundu út réttu röðina á hrútunum
miðað við mat yfirdómnefndar undir stjórn Jóns
Viðars Jónmundssonar. Í öðru sæti í flokki þeirra
sem gáfu hrútunum stig og eru vanir hrútaþuklarar
varð annar Strandamaður, Guðbrandur Björnsson
á Smáhömrum í Tungusveit, en þriðji varð Úlfar
Sveinsson úr Skagafirði.
Jón Viðar Jónmundsson, dómnefndarformaður, mættur til leiks.
Brandur á Bassastöðum tvínónar ekki við þuklið, Jón Vilhjálmsson heldur í hrútinn.
Sverrir Guðbrandsson tekur lagið ásamt vænum Strandahrút frá Heydalsá.
Kristján Albertsson á Melum tekur á hrútnum, Guðbrandur á Smáhömrum párar niður stigagjöfina.
Óþekktur eldri maður spjallar við Sverri Bassa (eða hrútinn) um daginn og veginn.
Það er tilvalið að leika sér í Sauðfjársetrinu, hvort sem er í barnahorninu eða úti á Rannveigu.
Hrútastigun krefst rækilegrar umhugsunar - og þá er gott að hafa eitthvað til að geyma skriffærin á.
Óþekktur aðili úr Kvæðamannafélaginu Iðunni fylgist með þuklinu.
Það er ekki úr vegi að skella sér á bak - svona fyrst það er hægt á annað borð.
Jón Stefánsson stórbóndi og eðalhrútaræktandi á Broddanesi þuklar af krafti.
Stefán Snær Ragnarsson, ungbóndi á Heydalsá, heldur í Skara vin sinn.
Tilkynnt um sigur Sigurðar Sigurðarsonar í flokki óvanra þuklara. Stjórn Sauðfjársetursins, formaður dómefndar og Sigurður sjálfir hafa bersýnilega gaman af.
Topp 3: Guðbrandur á Smáhömrum í 2. sæti, Kristján á Melum í 1. sæti og Úlfar úr Skagafirði í 3ja.
Sigurvegurum klappað lof í lófa. Ljósm. Kristín Sigurrós Einarsdóttir og Jón Jónsson
|















