Sauðfjársetur á Ströndum - Sævangi - 510 Hólmavík - Sími: 451-3324 / 661-2009 - Mail: saudfjarsetur@strandir.is

   

 

Safnið
 

Kaffi Kind

 

Minjagripir

 

Viðburðir

 

Fréttir

 Myndir

 

Munir

 

Fróðleikskista

 

Tenglar

 

Hafa samband

 

 
Meistaramót í hrútadómum 2008

Hörður Guðmundsson frá Böðmóðsstöðum í Laugardal býr sig undir þátttöku í þuklinu. Baka til spóka Salbjörg Engilbertsdóttir, Steinunn Þorsteinsdóttir og Laufey Heiða Reynisdóttir sig í sólinni.

Fjöldi bíla var við Sævang og höfðu margir á orði að bílamergðin minnti á gömlu sveitaböllin.

Hrútarnir mættir á svæðið eftir ítarlega skoðun dómnefndar.

Hlaðborðið í kaffistofunni var óhemju glæsilegt og vel sótt af mótsgestum.

Reynir Björnsson bóndi og íhaldsmaður í Miðdalsgröf heldur í hrútinn Gimstein.

Snorri Jónsson á Hólmavík heldur í hrútinn Koll og Matthías Lýðsson í Húsavík í hrútinn Berg. Snorri var vélaður í íhaldsmannsstarfið og leysti það af hendi með prýði.

Sverrir "Bassi" Guðbrandsson með hrútinn Hrein (ekki þó þann sem sést stundum í sjónvarpinu).

Vönu þuklararnir fóru fyrst inn í hringinn - hinir óvönu fengu gullið tækifæri til að fylgjast með.

Guðbrandur Björnsson á Smáhömrum veltir fyrir sér hvaða hrútur sé bestur. Hann komst að réttri niðurstöðu og lenti í öðru sæti.

Guðrún Þórðardóttir og Kristín Herdís Magnúsdóttir fylgjast með keppninni úr fjarlægð.

Jón Vilhjálmsson, Svanhildur Jónsdóttir og Deutz-vélin Rannveig sáu um ferðir í kindavagni
fyrir ungu kynslóðina.

 

Jón Jónsson á Kirkjubóli og Guðbrandur Sverrisson á Bassastöðum bera saman bækur sínar.

Guðbrandur tekur á hrygg hrútsins Gimsteins.

Ásdís Jónsdóttir sá um tónlistina í Sævangi. Laufey Eysteinsdóttir frá Bræðrabrekku tók undir.

Sverrir "Bassi" Guðbrandsson lætur vel að hrútnum Hreini...

...sem kann engan vegin að meta blíðuhótin!

Inni í barnahorninu var boðið upp á fría andlitsmálningu sem var vel nýtt af yngri kynslóðinni.

Sveitungarnir Jón Valur Jónsson á Kirkjubóli og Stefán Snær Ragnarsson á Heydalsá skemmtu sér vel á hrútadómunum.

Einar Kristinn Guðfinnsson landbúnaðarráðherra var að sjálfsögðu mættur á hrútadómana og lét ekki sitt eftir liggja í þuklinu. Hrútnum Kolli virðist líka vel við handbragð ráðherrans sem komst þó ekki á verðlaunapall að þessu sinni.

Eftir þuklið slakaði ráðherrann á í eldrauðum Rússajeppa í eigu Sverris Guðbrandssonar.

Einbeiting keppenda var í hámarki.

Hreinn gerir enn eina tilraunina til að fella Sverri Bassa af stalli sínum. Hörður Guðmundsson gerir sig líklegan til að róa hrútinn, en Guðbrandur Björnsson virðist ruglast í öllum látunum og þuklar Sverri í staðinn fyrir Hrein.

Yngsta kynslóðin skemmti sér ekki minna á hrútadómunum en hinir eldri, enda nóg við að vera.

Árný Björk Björnsdóttir á Melum í Árneshreppi glöð í bragði eftir sigur í óvana flokknum. Arnar S. Jónsson stendur við míkrafóninn, Matthías Lýðsson við verðlaunaborðið en Lárus Birgisson stendur við innganginn í Sævang.

Sigurvegarar í óvana flokknum. Í miðið er Árný Björk Björnsdóttir sem var í fyrsta sæti, lengst til vinstri er Ómar Ólafsson sem var í öðru sæti og lengst til hægri er Guðmundur Björnsson sem var í þriðja sæti. Árný og Guðmundur eru börn Björns Torfasonar á Melum sem sigraði í vana flokknum.

Jón Viðar Jónmundsson, formaður dómefndar og uppflettirit um kynbótahrúta á Íslandi, les upp úrslit og skemmtilegan rökstuðning í óvana flokknum.

Sigurvegarar í vana flokknum. Björn Torfason á Melum í Árneshreppi er í miðið, en hann heldur á sigurgripnum "Horft til himins" sem tileinkaður er minningu Brynjólfs Sæmundssonar ráðunautar. Lengst til hægri er Guðbrandur Björnsson á Smáhömrum í Tungusveit, en hann hreppti annað sætið. Í þriðja sæti var síðan Hörður Guðmundsson frá Böðmóðsstöðum í Laugardal - hann er lengst til vinstri.
 

Ljósm. Ásdís Jónsdóttir og Jón Jónsson
 


 


 

 

Sauðfjársetur á Ströndum ses. - saudfjarsetur@strandir.is
© 2007 Sauðfjársetur á Ströndum