|
|
||
| Sauðfjársetur á Ströndum - Sævangi - 510 Hólmavík - Sími: 451-3324 / 661-2009 - Mail: saudfjarsetur@strandir.is | ||
|
|
Úrslit Íslandsmeistaramótsins
2010 urðu eftirfarandi:
Í flokki vanra
hrútaþuklara:
Verðandi Íslandsmeistarar í óvana flokknum, Emma Ýr Kristjönudóttir og Brynja Bjarnfjörð Magnúsdóttir, klæddu sig svo sannarlega eftir veðri.
Mikill fjöldi fólks mætti í Sævang þennan frábæra dag. Nokkuð nákvæm talning meðan dómarnir stóðu sem hæst gaf af sér 130 bifreiðar á hlaðinu.
Jón Stefánsson, stórbóndi á Broddanesi, heldur í gráa hrútinn Spaða. Spaði er í eigu Jóns sem hefur verið góður og gildur íhaldsmaður í fjöldamörg ár. Það kom sér vel á hrútadómunum!
Grundarbræður, Mundi og Billi Páls, taka stöðuna í upphafi móts.
Matthías Lýðsson í Húsavík heldur í eigin hrút sem ber nafnið Fleygur. Í baksýn má sjá meistara ársins 2009, Guðbrand Björnsson á Smáhömrum og Kristján Albertsson á Melum, sem vann 2006 og 2007.
Sverrir Guðbrandsson er andlit keppninnar. Hér heldur hann í bekrann Grafar í eigu Jóns Stefánssonar. Indriði Aðalsteinsson á Skjaldfönn fylgist íbygginn með í bakgrunni.
Hrútadómarnir eru ekki bara vettvangur til að þukla hrúta, þeir eru líka tilvaldir til að hittast, hlæja og spjalla við góða kunningja.
Hér gefur að líta lykiltölur sem vönu þuklararnir nýta sér óspart til að styðjast við.
Jón Loftsson á Hólmavík tékkar á baki Grafars. Jón skemmti sér vel á dómunum, en mun betur á Þuklaraballinu um kvöldið, en hann er Geirmundaraðdáandi nr. 1 á landinu öllu.
Mikið var spáð og spekúlerað í hrútana. Lengst til hægri má þekkja Eirík á Stað í Króksfjarðarnesi.
Guðbrandur Sverrisson á Bassastöðum og Ragnar Bragason á Heydalsá afskaplega alvarlegir yfir hrútnum Grafari. Vonandi hefur hann ratað í rétt sæti hjá köppunum.
Það vekur mikla athygli hjá keppendum þegar dómnefndin festir upp sitt mat að lokinni keppni.
Talsverður spenningur ríkti þegar úrslit voru tilkynnt.
Sigurvegarar óvana flokksins. Í fyrsta
sæti urðu þær Brynja Bjarnfjörð og Emma Ýr Kristjönudóttir
Hér gefur að líta þrjá efstu menn í vana flokknum. Í miðjunni er Hrútameistari Ríkisins árið 2010, Elvar Stefánsson í Bolungarvík, með verðlaunagripinn Horft til himins sem er veittur Íslandsmeistaranum á hverju ári. Lengst til vinstri er Björn Torfason, bóndi á Melum í Árneshreppi, sem lenti í öðru sæti og lengst til hægri er Eiríkur Helgason í Stykkishólmi sem lenti í því þriðja. Allir þessir aðilar hafa komið við sögu á verðlaunapalli hrútadómanna áður, en Elvar var að vinna titilinn í fyrsta skipti.
Lárus Birgisson hjá Sauðfjársæðingastöð
Vesturlands veitir Elvari ein flottustu verðlaunin á Hrútadómum á
hverju ári; 15 skammta af hrútasæði frá stöðinni. Í kaupbæti fylgdi
koss frá Lárusi eftir mikla hvatningu frá kynni keppninnar, en
myndatökur voru ekki leyfðar meðan á honum stóð. Lengst til hægri
glittir í glaðbeittan Jón Viðar Jónmundsson, en án hans væri
illmögulegt - eða ómögulegt - að halda Íslandsmeistaramót í
hrútadómum.
Ljósm. Jón Jónsson og Ásdís
Jónsdóttir |
|
|
Sauðfjársetur á Ströndum
ses. -
saudfjarsetur@strandir.is |
||