Sauðfjársetur á Ströndum - Sævangi - 510 Hólmavík - Sími: 451-3324 / 661-2009 - Mail: saudfjarsetur@strandir.is

   

 

Safnið
 

Kaffi Kind

 

Minjagripir

 

Viðburðir

 

Fréttir

 Myndir

 

Munir

 

Fróðleikskista

 

Tenglar

 

Hafa samband

 

 
Spurningakeppni Sauðfjársetursins 2003

Þetta mun vera eina myndin sem varðveist hefur frá Spurningakeppni Sauðfjársetursins 2003. A.m.k. sú eina sem finnst í tölvukerfinu nú um stundir og hana prýðir spyrillinn, dómarinn og spurningahöfundurinn Arnar S. Jónsson þar sem hann dælir út hraðaspurningum í svörtum fötum á svörtum bakgrunni.

Fyrsta keppniskvöld:

Liðin sem mættast í fyrstu umferð voru:

Heilsugæslan II - Nemendur Hólmavíkurskóla
Félag eldri borgara - Hólmadrangur I
Kennarar Hólmavíkurskóla - Fiskvinnslan Drangur
Grundarás - Strandagaldur

Af þessum liðum komstu Grundarás og Kennarar í Hólmavíkurskóla í úrslit. Mæting á spurningakeppnina sem haldin var í Sævangi var framar vonum.

Annað keppniskvöld:

Liðin sem mættust í fyrstu umferð á öðru keppniskvöldinu voru:

Hólmadrangur II - Heilsugæslan I
Strandahestar - Kaupfélag Steingrímsfjarðar
Leikfélag Hólmavíkur - Skrifstofa Hólmavíkurhrepps
Vegagerðin - MHM ehf.

Á öðru keppniskvöldi í spurningakeppni Sauðfjársetursins komust Skrifstofa Hólmavíkurhrepps og Hólmadrangur í úrslit. Aðsókn var góð, en u.þ.b. 135 manns mættu á keppnina sem fór fram í blíðskaparveðri.

Fjögra liða úrslit og úrslitakeppnin:

Lið kennara við Hólmavíkurskóla fór með sigur af hólmi í Spurningakeppni Sauðfjársetursins árið 2003. Þeir sigruðu lið Hólmadrangs í úrslitum, en Hólmadrangur hafði áður unnið Grundarás sem mætti til keppni í smíðagallanum.

Keppniskvöldið var spennandi og skemmtilegt og í viðureign kennara og skrifstofu Hólmavíkurhrepps í undanúrslitum var jafnt á nær öllum tölum fram að síðustu vísbendingaspurningunum þar sem kennarar tryggðu sér sigurinn.

 


 

 

Sauðfjársetur á Ströndum ses. - saudfjarsetur@strandir.is
© 2007 Sauðfjársetur á Ströndum