Sauðfjársetur á Ströndum - Sævangi - 510 Hólmavík - Sími: 451-3324 / 661-2009 - Mail: saudfjarsetur@strandir.is

   

 

Safnið
 

Kaffi Kind

 

Minjagripir

 

Viðburðir

 

Fréttir

 Myndir

 

Munir

 

Fróðleikskista

 

Tenglar

 

Hafa samband

 

 
Sumarhátíð í Sævangi 2004

Árleg Sumarhátíð í Sævangi var haldin sunnudaginn 18. júlí og var óvenju fjölmennt. Blíðskaparveður setti svip á daginn og fór skemmtunin vel fram í alla staði. Sumarhátíð Sauðfjársetursins er rólegur fjölskyldudagur, þar er farið í leiki og fjölskyldubolta og kaffihlaðborð er á boðstólum.

Hápunktur dagsins er síðan kraftakeppnin Strandamaðurinn sterkasti. Óvenju margir keppendur tóku þátt að þessu sinni, 10 keppendur voru í karlaflokki og 8 í kvennaflokki. Miklu munaði um að stórfjölskylda úr Bolungarvík - Birna Hjaltalín og börn hennar, tengdabörn og barnabörn - tóku virkan þátt í sprelli dagsins. Fjölskyldan var reyndar svo fjölmenn að í óformlegum landsleik Bolungarvíkur og Stranda í fjölskylduboltanum fóru Bolvíkingar með öruggan sigur af hólmi 10-3. Markamaskínan Kristinn H. Gunnarsson þingmaður lagði einnig sitt af mörkum í þeirri keppni.

Sverrir bassi Guðbrandsson á Hólmavík hefur verið ósigrandi í kraftakeppninni síðustu 2 ár og hélt velli sem Strandamaðurinn sterkasti í karlaflokki að þessu sinni. Ekki hefur verið keppt í kvennaflokki áður, en þar sigraði Svanhildur Jónsdóttir frá Steinadal nokkuð örugglega.

Keppnisgreinarnar voru annars fimm - brúsahlaup, belgjakast, drumbahlaup, armlyfta og dráttarvéladráttur.

Ester Sigfúsdóttir á Kirkjubóli notaði sumarhátíðina til að leggja lokahönd á kerlingu sem hún gerði úr tveimur heyrúllum. Kerling þessi mun hér eftir gegna starfi safnvarðar á Sævangi og tekur á móti gestum Sauðfjársetursins. Þegar hafa heyrst raddir um að hana vanti karl.

Menningarborgarsjóður styrkir sumardagskrá Sauðfjársetursins 2004.

Áhorfendur í brekkunni við Sævang - búnir að koma sér fyrir þegar belgjakastið hófst.

Best að prófa að sparka blöðrunni - Soffía Vagnsdóttir sýnir veruleg tilþrif.

Belgurinn var flestum keppendum erfiður, hann var bæði óþægilega stór og þungur og asnalegur í laginu. Karlarnir hentu dálítið stærri belg en konurnar og köstin hjá þeim voru yfirleitt heldur styttri en í fyrra þegar þeir köstuðu járnkarli í staðinn.

Drumburinn góði var hreint ekki auðveldur viðureignar. Sverrir bassi ræðst til atlögu, bræðurnir Guðjón og Jóhann bíða átekta.

Arnar S. Jónsson og drumburinn góði á ferð eftir hlaupabrautinni.

Lýður Jónsson skokkar með drumbinn. Hinir hafa gaman af.

        

Sverrir og vinur hans drumburinn til vinstri. Sverrir sigraði allar greinarnar nema belgjakastið, þar varð hann í þriðja sæti - Arnar sem náði næst besta árangri í dráttarvéladrættinum tekur á því til hægri.   

Það er vissara að halda við vélina svo hún rjúki ekki af stað of snemma.

Sigurvegarar í kvennaflokki, Kolla í þriðja sæti, Ellý í öðru og Svanhildur í fyrsta.

           

Komiði bara á næsta ári ef þið þorið. Hehe.

Sigurvegarar í karlaflokki, Þórður Vagnsson í þriðja sæti, Sverrir Guðbrands í fyrsta sæti og Jóhann L. Jónsson í öðru.

 

 

 
 

 

Sauðfjársetur á Ströndum ses. - saudfjarsetur@strandir.is
© 2007 Sauðfjársetur á Ströndum