Helsti atburđurinn á Sumarhátíđ
í Sćvangi sumariđ 2005 var án efa
kraftakeppni
sem fór fram viđ Sćvang.
Ţar drógu menn dráttarvélar, héldu á múrsteinum, báru
vatnsbrúsa og köstuđu belgjum sem mest ţeir máttu. Allmargir
spreyttu sig á kraftaţrautunum og léku sér á vellinum í hinum
fjölbreyttustu leikjum. Ţađ voru ţau Jón Bjarni Bragason frá
Heydalsá og Laufey kona hans sem fóru međ sigur af hólmi í
kraftakeppninni ađ ţessu sinni. Í karlaflokki voru Lýđur
Jónsson og Vignir Pálsson í öđru og ţriđja sćti, en í
kvennaflokki voru ţađ mćđgurnar Agnes Jónsdóttir og Svanhildur
Jónsdóttir.
Veđur var
skaplegt
á Furđuleikunum, hann hékk ţurr og norđanáttin var hlýrri en
venjulega. Keppendur voru alls 22, en fimm fyrstu sćtin í
hverri ţraut gáfu stig í karla- og kvennaflokki. Gátu menn
tekiđ ţátt í ţeim ţrautum sem ţeir treystu sér í, en ţurftu
ekki nauđsynlega ađ keppa í öllum. Sólin lét ekki sjá sig og
áhorfendur hafa oft veriđ fleiri, margir hafa líklega látiđ
vonda veđurspá gabba sig.
Belgjakastiđ
reyndi mjög á menn, sérstaklega var erfitt ađ stjórna ţví
hvert belgirnir fóru í međvindinum. Jón Bjarni sigrađi í
karlaflokki og Agnes Jónsdóttir kastađi lengst í ţessari ţraut
í kvennaflokki.



Ţađ er afar erfitt ađ halda
múrsteinunum uppi. Vignir Pálsson og Jón Bjarni héldu
steinunum ţremur jafn lengi uppi eđa í 1:35 mínútur. Í
kvennaflokki hélt Svanhildur 2 steinunum uppi í 2:01 og
ţótti mönnum nóg um.

Splúnkuný gerđ
af skeiđklukku sem ţróuđ var af geimvísindastofunni NASA var
prufukeyrđ í keppninni og reyndist mjög vel.
Ţađ er hreint
ekki auđvelt ađ draga dráttarvélina Rannveigu af stađ, en svo
kemur ţetta allt saman međ tímanum. Lýđur Jónsson og Matthías
Lýđsson náđu besta tíma ţarna eđa 21 sekúndu, en í
kvennaflokki dró Laufey vélina tilskylda vegalengd á 26
sekúndum.

Bikararnir og heiđurinn sem
fylgir ţví ađ vera Strandamađurinn sterkasti nćsta áriđ fóru
báđir í sömu fjölskylduna. Jón Bjarni og Laufey međ bikara
og börnin. Jón Bjarni náđi í 16 stig af 20 mögulegum, en
Laufey í 17 stig af 20 mögulegum.
Ljósm. Grétar Matthíasson, Jón Jónsson og Ester Sigfúsdóttir