|
|
||
| Sauðfjársetur á Ströndum - Sævangi - 510 Hólmavík - Sími: 451-3324 / 661-2009 - Mail: saudfjarsetur@strandir.is | ||
|
. . . .
|
Sýningin er opin frá 10:00-18:00 alla daga yfir sumarið, en einnig er hægt að fá hana opnaða yfir veturinn með því að hringja í síma 661-2009 eða senda póst í netfangið saudfjarsetur@strandir.is, helst með dálitlum fyrirvara. Hópar eru boðnir hjartanlega velkomnir á sýninguna og einnig er auðsótt mál að fá að halda hvers kyns fundi, veislur, námskeið eða aðrar samkomur í Sævangi. Meðal þeirra þátta sem sýningin tekur á er t.d. almenn umfjöllun um sauðkindina, vorverkin, sauðburður, heyskapur, jarðvinnslu, túnrækt, sauðfjársjúkdóma, mörk og eyrnamerki, afurðir, sláturtíð, smalamennskur, réttir, ullarvinnslu, fjárhús, hættur sem steðja að sauðkindinni og margt fleira. Auk sýningarinnar er kaffistofan Kaffi Kind í Sævangi og einnig sölubúð með einstöku handverki.
Hollvinasamtök setursins
er Félag áhugamanna um Sauðfjársetur á Ströndum, en áhugasamir geta
gengið í félagið til að styðja við starfsemi safnsins.
Smellið hér til að kíkja á starfsemi félagsins.
Á sýningunni er mikil áhersla lögð á að allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi. Yngri kynslóðin er sérstaklega boðin velkomin í Sævang. Þar er sérstakt barnahorn með fullt af leikföngum og skemmtilegu dóti, aðstaða til að lita og föndra og einnig er þar lítið vísindahorn þar sem fræðimennirnir geta skoðað alls kyns hluti í víðsjá. Slík skoðun vekur gjarnan mikla kátínu og undrun.
Einnig er lögð áhersla á að gestir Sauðfjársetursins fái að upplifa sýninguna á ríkari og öðruvísi hátt en venja er víðast hvar - sýningin reynir á öll skilningarvitin. Hluti af þessu er t.d. hrútabandið sem er einn óvenjulegasti sýningargripurinn; gamalt band sem notað var til að binda hrúta, en bandið angar vægast sagt af fyrri notendum sínum. Ef vel er hlustað inni sýningunni má heyra fjárhúsastemmningu, stjákl og einstaka jarm, og einnig geta gestir prófað sérstaka hluti á sýningunni - t.d. geta áhugasamir haldið á rafmagnsklippum sem eru í gangi, athugað þyngd sína í kindavigt eða stimplað sig með vel völdum stimpli í sláturhúsinu. Þeir sem eru áhugasamir um að prófa safngripi eða skoða þá ítarlega er velkomið að gera það.
Annað sérkenni á sýningunni er mikill fjöldi ljósmynda sem þar er til sýnis, en þær sýna vel hversu fjölbreytt og margbrotið starf sauðfjárbænda er. Myndunum er reglulega skipt út og reynt er að hafa uppi myndir sem vekja gleði og áhuga gesta á viðfangsefni safnsins.
Texti sýningarinnar er fáanlegur á
ensku og þýsku í afgreiðslu
safnsins. Einnig er hægt að kaupa lítið fræðsluhefti í handverksbúð
setursins sem inniheldur allan texta og úrval ljósmynda í eigu
safnsins.
Heimalningunum er gefin mjólk úr pela með aðstoð gesta sem í heimsókn eru hverju sinni. Það er skemmtileg iðja og margir fullorðnir hafa líka rifjað upp takta frá því þeir voru í sveit í gamla daga auk þess sem börnin hafa mikið gaman af því að sjá þá drekka og spreyta sig á að halda á pela. Áfergjan er oft mikil og menn mega hafa sig alla við til að fullnægja drykkjuþörf lambanna. Sauðfjársetrið hefur einnig haft hænur í heimsókn yfir sumarið og aldrei er að vita hvaða dýr verða næst í sumarheimsókn.
Verið velkomin á Sauðfjársetrið!!!
|
+++
|
|
Félag
áhugamanna um Sauðfjársetur á Ströndum -
saudfjarsetur@strandir.is |
||