|
Jón Jónsson fór fyrstur um brautina og ók hratt. Kannski helst til hratt, því tvisvar þurfti hann að stökkva af vélinni og sækja Hamingju-Hrólf sem veltist út af pallinum.
Guðmundur Björgvin sparisjóðsstjóri á Hólmavík ók hins vegar gætilega og gerði engin mistök.
Allmargir þátttakendur tóku þátt í keppninni, bæði Strandamenn og gestir þeirra. Erlendum ferðamönnum sem voru á staðnum leist þó ekki á að taka þátt í keppninni þótt þeir væru úr sveit, fannst vélin í fullorðnari kantinum.
Frekar kalt var í veðri, en áhorfendur létu það ekki á sig fá. Ókeypis var inn á sögusýninguna í Sævangi og fjölmargir gestir notuðu sér það og skoðuðu sýnininguna, auk þess að hlýja sér í kaffihlaðborðinu.
Akstursleiðin lá um Orrustutanga, fyrir framan Sævang. Að mörgu þurfti að huga við aksturinn og hér er Jón Örn Haraldsson í brautinni.
Það vafðist helst fyrir mönnum að bakka í endamarkið, en hafðist þó alltaf að lokum. Kalli Þór sem sigraði í karlaflokki bakkaði hins vegar vandræðalaust í mark, fór villulaust í gegnum brautina og á ágætum tíma.
Auðunn Ingi Ragnarsson á Kollsá varð þriðji í karlaflokki (til vinstri á myndinni), Guðbrandur Björnsson á Smáhömrum varð annar og Karl Þór Björnsson (til hægri) sigraði með glæsilegum og villulausum akstri.
Aðeins tveir keppendur voru í kvennaflokki, mæðgurnar Ásdís Jónsdóttir sem varð önnur og Svanhildur Jónsdóttir sem náði fyrsta sæti í ár, rétt eins og í öll önnur skipti sem dráttarvélardagur hefur verið haldinn af Sauðfjársetrinu. |









