|
Upplýsingamiðstöðin á Hólmavík
Sögusmiðjan tók að sér rekstur og gæðaþróun á
Upplýsingamiðstöðinni á Hólmavík með samningi við Hólmavíkurhrepp
vorið 2003. Síðan hefur allmikil vinna verið í gangi við þróun á
rekstri miðstöðvarinnar.
Grettistak í Húnaþingi vestra
Í september 2001 var skrifað undir samstarfssamning Sögusmiðjunnar og
stýrihóps um Grettisverkefni í Húnaþingi vestra. Skýrslu var síðan
skilað í ársbyrjun 2002. Í henni var heilmikil hugmyndavinna og tillögur um framkvæmdir í tengslum við
viðamikið menningar- og ferðaþjónustuverkefni sem kallast Grettistak.
Verkefnið byggist á Gretti sterka Ásmundarsyni og sögustöðum honum tengdum
í Húnaþingi vestra og reyndar víðar um land.
Lagarfljótsormurinn
Sumarið og haustið 2000 vann Sögusmiðjan hugmyndavinnu um hvernig hefja megi
þekktasta vatnaskrímsli landsins, Lagarfljótsorminn, til frekari vegs og
virðingar. Jafnframt var skoðað hvernig og hvort takast mætti að gera hlut
hans í ferðaþjónustu á Fljótsdalshéraði meiri og hvernig slíkt verkefni
gæti komið sem flestum að notum og haft sem víðtækust jákvæð áhrif
fyrir heimamenn og gesti.
Ferðaþjónusta til framtíðar
Þróunarverkefni á vegum Iðntæknistofnunar 1997-99, þar sem Sögusmiðjan sá um
kennsluefnisgerð og kennslu um notkun þjóðmenningar og sögu í ferðaþjónustu.
Verkefnið snérist annars að miklu leyti um umhverfisstefnu og vistvæna
ferðaþjónustu. Verkefnisstjóri var Jón Ágúst Reynisson, landfræðingur hjá
Iðntæknistofnun, en fyrirtæki sem tóku virkan þátt í verkefninu voru alls 30.
Sagnareki -
Sögustaðamerkingar á Ströndum
Á Ströndum hefur verið unnið að merkingu á
þjóðsagnaslóðum og sögustöðum síðustu árin. Sögusmiðjan hefur
komið að verkefninu, en Héraðsnefnd Strandasýslu stóð fyrir átakinu og
það var styrkt af Umhverfissjóði verslunarinnar. Nú er áhugi fyrir að
átakið nái um alla Vestfirði og hefur Dorothee Lubecki
ferðamálafulltrúi Vestfjarða yfirumsjón með vinnunni.
Ferðaþjónusta og þjóðmenning
Átaksverkefni í ferðaþjónustu á Ströndum sem hófst árið 1995 og lauk 1998.
Héraðsnefnd Strandasýslu stóð fyrir verkefninu, en vinnan við það fékk Nýsköpunarverðlaun
forseta Íslands árið 1996. Það var m.a. styrkt af Nýsköpunarsjóði
námsmanna, Byggðastofnun og Samgönguráðuneyti.
Bókaútgáfa og fleira
Strandir - jarðalýsingar og ábúendatöl Í vetur
kemur út ritið Strandir, en þar er fjallað um jarðir og ábúendur í
Strandasýslu síðustu árin. Bókin hefur verið alllengi í smíðum.
Kynjakarlar og skringiskrúfur
Á vordögum 2000 var útvarpað á Rás 1 sex útvarpsþáttum
um förumenn á Íslandi. Sagðar voru sögur og fjallað um efnið frá
margvíslegum hliðum. Þættirnir voru unnir í samvinnu Sögusmiðjunnar og
Rósu Þorsteinsdóttur þjóðfræðings sem starfar á Stofnun Árna
Magnússonar. Þáttagerðin var styrkt af Menningarsjóði
útvarpsstöðva. Þættirnir voru endurfluttir sumarið 2003.
Þjóðtrú og börn
Haustið 1998 ýtti Sögusmiðjan úr vör viðamiklu
langtímaverkefni sem fjallar um þjóðtrú og barnamenningu.
Verkefnið miðar að því að kynna íslenskan þjóðtrúarheim fyrr og nú
fyrir börnum og unglingum, og einnig snýst það um rannsókn á barnamenningu
og þjóðtrú.
Vefsíður
Vestfjarðavefurinn
Viðamikill og glæsilegur
vestfirskur upplýsingavefur sem opnaður var formlega í maí 2000. Þar er fjallað um
menningu og mannlíf,
ferðaþjónustu og sögu á Vestfjörðum. Sögusmiðjan vann vefinn fyrir AtVest
og sér um rekstur hans.
Héraðsbókasafn
Strandasýslu
Vefur sem opnaður var haustið 2003 í tengslum við markaðsátak
bókasafnsins.
Upplýsingamiðstöðin
á Hólmavík
Þegar Sögusmiðjan tók við rekstri Upplýsingamiðstöðvarinnar á
Hólmavík vorið 2003 var gerður lítill vefur til að kynna miðstöðina.
Leikfélag
Hólmavíkur
Í ársbyrjun 2003 var opnaður vefur Leikfélags Hólmavíkur - langflottasti
vefur áhugaleikfélags á landinu.
Sauðfjársetur
á Ströndum
Sögusmiðjan gerði vefsíðu Sauðfjársetursins.
Strandir.is
Sögusmiðjan á og rekur lénið www.strandir.is. Þar er fréttavefur
fyrir Strandasýslu ásamt ýmsu öðru.
Ferðaþjónustan
Kirkjuból
Sögusmiðjan bjó til vef fyrir Ferðaþjónustuna Kirkjuból vorið
2001 og hefur séð um viðhald hans síðan. Þar er gistihús með 5
herbergjum. Á Kirkjubóli er lögð áhersla á fjölskylduvæna
ferðaþjónustu. Þar hefur verið unnið að útivistarsvæði í fjörunni og
útbúið leiksvæði fyrir börnin og hús fyrir þau að leika sér í.
Vefur Byggðasafnsins á
Reykjum Nýr
vefur Byggðsafnsins á Reykjum var opnaður vorið 2001. Sögusmiðjan sá um
vefsíðugerð, en á vefnum er fjallað um safnið og ýmsa gripi þess, uppákomur
og viðburði. Þá gerð grein fyrir áherslum í starfi Byggðasafnsins og
framtíðaráformum.
Hólmavíkurhreppur Vefur Hólmavíkurhrepps
var opnaður um áramótin 2000/2001. Þar eru meðal annars upplýsingar um
sögu sveitarfélagsins og starfsmenn, fundargerðir hreppsnefndar og margar
myndir af mannlífi. Sögusmiðjan sá um vefsíðugerð og textagerð að
mestu leyti.
|